ReykjavíkBarokk

Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk var stofnaður árið 2012 af hópi hljóðfæraleikara sem leika á upprunahljóðfæri. Markmið hópsins er að auka veg barokktónlistar og vera gleðigjafi í íslensku tónlistarlífi. ReykjavíkBarokk hefur komið fram á Sumartónleikum í Skálholti, Háskólatónleikum, Listahátíð í Reykjavík, Barokksmiðju Hólastiftis, Sumartónleikum við Mývatn, Sumartónleikum í Akureyrarkirkju og víðar. Árið 2019 stofnaði Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk Kona – Forntónlistarhátíð sem haldin hefur verið á tveggja ára fresti síðan.

ReykjavíkBarokk Ensemble was founded in 2012 and by a group of musicians interested in playing early music on original instruments. The aim of the group is to promote historical performance of Early Music in Iceland.
ReykjavíkBarokk Ensemble has given concerts in Skálholt Summer Concerts, Reykjavík Art Festival, Baroque Festival in Hólar, Summer Concerts at Mývatn and Summer Concerts in Akureyrarkirkja. In 2019, ReykjavíkBarokk Ensemble founded the bi-annual Kona Forntónlistarhátíð, Woman Early Music Festival.